Velkomin
Á heimasíðu Hugleiðslu og Friðarmiðstöðvarinnar í Reykjavík. ![]()
Speki mánaðarins:
Enda þótt ég hafi sýnt aðferðirnar til frelsunar, skaltu vita að hún er undir þér einum komin.
Búdda (úr bók mánaðarins)
Bók mánaðarins: Hugarró eftir Rob Nairn í þýðingu Árna Óskarssonar
Til að fá frið í heiminum þarf fyrst að fá frið í hjartanu.
Þetta eru einkunnarorð verndara stöðvarinnar en þeir eru tíbetskir munkar sem hafa aðsetur í Skotlandi í tíbetsku klaustri sem heitir Samyé Ling (www.samyeling.org). Þeir eru tveir bræður sem heita Akong Tulku Rinpoche og Lama Yeshe Losal Rinpoche en lína þeirra tilheyrir Kagyu línu tíbetsk búddisma sem er beint undir H.H.17. Karmapa sem flúði frá Tíbet eftir H.H.14. Dalai Lama. Hugleiðslan sem kennd er hér er sú sama og hefur verið í árþúsund í Tíbet og kemur frá Buddha Sakymuni. Kennari sem heitir Rob Nairn kemur að jafnaði einu sinni á ári og heldur námskeið hér.
Allt starf þessara manna miðast að því að hjálpa öðrum og þeir taka ekki greitt fyrir það sem þeir gera. Fólk gefur þeim frjáls framlög og þeir lifa á því.
Í Hugleiðslu og Friðarmiðstöðinni er kennd hugleiðsla á byrjendanámskeiðum fyrir þá sem eru að hefja hugleiðslu og framhaldsnámskeið eru fyrir þá sem hafa hugleitt í einhvern tíma. Einnig eru haldnir fyrirlestrar um ýmis málefni sem bætt geta mannsandann. Regluleg hugleiðsla, opin öllum, er alltaf á miðvikudagskvöldum.
Stöðin fluttist í núverandi húsnæði í ársbyrjun 2007 en áður fór kennsla og hugleiðsla fram í heimahúsi.
Ath. Heimasíðan okkar er reglulega uppfærð og nýjum tenglum bætt við. Verið er að vinna í enskri útgáfu sem verður brátt tilbúin.
Hugleiðslupúðar
Hugleiðslupúðar eru seldir á miðstöðinni. Hægt er að panta þá á hugleidsla@hugleidsla.is eða kaupa þá beint á hugleiðslukvöldum.Verð: 6.000 kr.
H.H.14.Dalai Lama og

